Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis


SPRON
Rekstrarform: Almenningshlutafélag
Slagorð: Óþekkt
Hjáheiti: Óþekkt
Stofnað: 5. mars 1932
Staðsetning: Reykjavík, Ísland
Lykilmenn: Guðmundur Hauksson, forstjóri
Starfsemi: Bankastarfsemi
Heildareignir Óþekkt
Tekjur Óþekkt
Hagnaður f. skatta Óþekkt
Hagnaður e. skatta 3,287 milljónir kr. (2007)[1]
Eiginfjárhlutfall 13,4% (2007)[1]
Dótturfyrirtæki Óþekkt
Starfsmenn 280 (ásamt dótturfélögum)
Vefslóð www.spron.is

Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis oftast stytt í skammstöfunina SPRON (enska: Reykjavik Savings Bank) er íslenskur banki. Hann rekur níu útibú, öll eru þau á höfuðborgarsvæðinu.

Á fyrsta ársfjórðungi 2008 tapaði SPRON 8,8 milljörðum kr. eftir skatta.[2] Þetta var tilkynnt eftir að hlutabréfaverð, m.a. í Exista, fyrirtæki sem er í krosseignarhaldi hjá SPRON, höfðu fallið frá áramótum. Þá hófust umræður við Kaupþing banka um hugsanlega sameiningu.[3] Talið er að krosseignarhaldið á Exista gæti flækt fyrir sameiningunni.[4]

Saga

Sparisjóðurinn var upphaflega stofnaður þann 5. mars árið 1932, starfsemi bankans hófst 28. apríl sama ár. Á fyrsta starfsdeginum voru 70 sparisjóðsbækur gefnar út.[5] Sparisjóðurinn var til húsa hjá frú Þóru Magnússon við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavíkur.[6] Í frétt Morgunblaðsins þann 1. maí (Verkalýðsdeginum) var sagt um sparisjóðinn:

Sparisjóðsstofnun þessi mun hafa vakið marga til umhugsunar um það, hve hjákátlega lítið því hefir verið sint á undanförnum árum, að örfa almenning til að safna fje í sparisjóði. Við allan atvinnurekstur landsmanna vantar reksturfje. En þeir menn, sem veita þjóðinni ódýrasta rekstursfjeð, með því að leggja í sparisjóð, eru ofsóttir á allar lundir. Löggjafarvaldið leggur sig í framkróka, til þess að ná sem mestu í skatta af sparifjáreigendum, í stað þess, ef forsjá rjeði í þessu land. þá ættu sparifjáreigendur, sem leggja fje sitt á borð með sjer í búskap þjóðarinnar, að eiga vísa vernd og aðhlynning stjórnarvaldanna.[6]

Tilvísanir

Tengill







stock | retire | vm
Why are we here?
All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License
This page is cache of Wikipedia. History