Eddukvæði eru fornnorræn kvæði, sem skiptast í goðakvæði og hetjukvæði. Þau eru talin ort á tímabilinu frá síðari hluta 9. aldar til um það bil 1100. Menn eru ekki á einu máli um það hvar þau hafi verið ort og hefur verið haldið fram Íslandi, Noregi, Grænlandi og jafnvel Færeyjum og Vestureyjum. Hins vegar er ljóst að þau hafa alfarið geymst á Íslandi. Þekktustu goðakvæðin eru Völuspá og Hávamál en hetjukvæðin eru ort um afrek hetja eins og Völsunga og Niflunga.
stock | retire | vm
Why are we here?
All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License
This page is cache of Wikipedia. History