Þjóðskrá


Þjóðskrá er skrá yfir alla einstaklinga sem hafa ríkisborgararétt eða búseturétt í því landi sem þjóðskráin nær yfir.

Í þjóðskrá eru færðar breytingar sem verða á högum manna svo sem fæðingar, nafngjafir, breytingar á hjúskaparstöðu, flutningar, andlát og fleira.

Íslensku þjóðskránni er viðhaldið af Þjóðskrá, sem var upphaflega deild í Hagstofu Íslands, en er nú sjálfstæð stofnun.

Greiða þarf fyrir upplýsingar úr þjóðskrá, en netbankar (heimabankar) veita aðgang að skránni án endurgjalds.

Tenglar







stock | retire | vm
Why are we here?
All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License
This page is cache of Wikipedia. History